Margir halda að kynlífsfíkn hljóti að vera á einhverju afbrigðilegu sviði, þar séu öfuguggar á ferð, en svo þarf alls ekki að vera. Fíknin getur verið til vandræða þótt hún sé á viðurkenndu sviði svo sem sókn í samfarir, sjálfsfróun, klám og vændi. Annað svið er svo á gráu svæði svo sem sókn í að sýna sjálfa(n) sig, gægjast á glugga, klæmast í síma eða á netinu, hafa mök við dýr o.s.frv. Þriðja sviðið er svo sókn í hegðun sem er hættuleg og glæpsamleg, eins og sifjaspell, misnotkun barna og nauðgun.