Dópamín er taugaboðaefni framleitt í heila. Það á þátt í stjórnun fjölmargra ferla í miðtaugakerfinu og hefur hlutverki að gegna til dæmis í úrvinnslu skynhrifa, sjálfráðri hreyfistjórnun,hugsun og stjórnun á prólaktínframleðsu og fleiri þáttum. Það er stundum sagt tengjast ástinni, en þegar maður er ástfanginn framleiðir heilinn þetta efni í meira magni en vanalega. Dópín stjórnar örvunarstigi í mörgum hlutum heilans og er nauðsynlegt til að hvetja líkamann til dáða. Þegar mjög lítið er af því eins og í parkinsonsveiki getur fólki reynst ógerlegt að hreyfa sig af sjálfsdáðum. Lágt dópamínstig getur líka átt þátt í andlegri tregðu. Of mikið mang virðist eiga þátt í geðklofa og getur valdið ofskynjunum. Ofskynjunarlyf eru talin verka á dópamínkerfið.