Hvað er fíkn ? Fíkn er ávanabinding og er hugtak sem notað er yfir áráttu til að endurtaka eyðinleggjandi hegðun. Einstaklingur sem er háður einhverju er sagður vera fíkill. Mörg lyf valda ástandi sem fela í sér þörf til þess að fá meira, auka þol einstaklingsins fyrir því svo hann þarfnast stærri og stærri skammta, og valda sársauka, kvíða og óþægindum þegar notkun lyfjanna er hætt. Þannig áhrif kallast fráhvarfseinkenni. Fíkn er einnig notað yfir aðra hegðun sem felur eingöngu í sér sálfræðilega hegðun t.d fjárhættuspil,netfíkn eða fíkn í klámi. velt er fyrir sér hvort of mikið át teljist til fíknar. Einstaklingar sem breyta mataræði sínu skyndilega upplifa oft fráhvarfseinkenni og það kallar á spurninguna hvort efni í mat sem sagt sykur geti valdið fíkn. Meðal þeirra lyfja sem valda fíkn eru: Áfengi, heróín, kókaín, kódín og nikótín sem sumir telja það mest vanabindandi efnið. Flest lyf hafa örvandi áhrif en sum hafa þó róandi áhrif. Einstök lyf hafa bæði róandi og örvandi áhrif. Fíkn er talin eitt helsta heilbrigðisvandamálið um allan heim enda ljóst að hegðun margra ræðst af fíkn þeirra auk þess sem fíklar koma víða við sögu í heilbrigðiskerfinu.Almennt er gerður greinarmunur á líkamlegri og sálfræðilegri fíkn. Líkamleg fíkn leiðir til líkamlegra einkenna þegar neyslu er hætt og sálfræðileg fíkn til sálfræðilegra einkenna. Líkamleg áhrif efnis hefur í för með sér líkamlega vanlíðunartilfinningu þegar neyslu efnis er hætt. Sálfræðileg fíkn felur í sér vellíðunartilfinningu og þörf fyrir áframhaldandi neyslu til að forðast vanlíðunartilfinningu. Ekki er endilega víst að erfiðara sé að slökkva sálfræðilega fíkn en líkamlega. Hversu lengi það tekur einstakling að vera háður vímugjafa veltur bæði á vímugjafanum, hve oft hans er neytt sem og einstaklingnum sjálfum. Sem dæmi segja sumir alkóhólistar að þeir hafi ánetjast áfengi við fyrsta sopann á meðan flest fólk getur drukkið áfengi í félagsskap annarra án þess að teljast vera fíklar.